Monday, September 22, 2008

Paris

Jæja, loksins komin til Parísar og þá er komin tími til þess að fara að blogga aftur.

París er fokking æðisleg, komum í gær, í íbúðina okkar sem er svo mega kósí. okkur líður bara eins og við séum heima sem við jú erum.

10 mín labb í gær, þá eru við komnar að signu og eiffel turninn blasir við, ekki leiðinlegt það, svo svona 20 mín í viðbót og þá erum við komnar að honum... jeee, líkar það vel.

löbbuðum um 4. hverfið í dag, mýrin. Gyðingahverfi, svo bara rétt við hliðina er hommahverfið, haha.. þar voru án efa fallegustu menn parísar, alveg týpískt að þeir séu hommar... kræst

svo fundum við stað sem við munum vera alltaf á milli 5 og 8, happy hour. 3 evrur fyrir bjór eða vínglas og þá fær maður með smárétti, pasta og pizzu og eitthvað frítt með OOOg, 6 evrur fyrir mojito og svona matur með líka, voða næs. ekki leiðinlegt að fá sér mojito, finnst það alls ekki leiðinlegt.

haha, þrátt fyrir að vera búnar að sjá eiffel turninn, notre dame og svona þá samt vorum við eygló alveg að missa okkur yfir monoprix.... sem er matvörubúð og lika smá fatabúð, svona eins og hagkaup. úrvalið er svo magnað haha. fullt af ferskum fiski og kjöti, svo allir ostarnir og allt brauðið, össössöss, við munum sko alveg nenna að elda í vetur, sem og við gerðum í kvöld, rosa duglegar.


en jááá... komið í heimsókn sem fyrst, alltaf pláss í sófanum og svo erum við með dýnu líka, pláss fyrir 3 auka í einu. allir að koma jájá

Kveðja Dóra Franska



P.S. svona var eiffel turninn í gær þegar við sáum hann, var blár og svo þegar við komum á brú á signu þá fór hann að blikka næs

8 comments:

Anonymous said...

Hipp hipp húrra!
Loksins byrjar Dóra að blogga aftur! :)
Ég hlakka til að lesa um ævintýri ykkar í París...
Þegar ég verð búin að finna verðandi eiginmanninn minn hérna í Ameríku, þá komum við í rómantískaferð til París og kíkjum í heimsókn!

Unknown said...

Haha hipp hipp húrra!

Mikið óskaplega öfunda ég þig! Ég er einmitt að byrja í prófundirbúningi fyrir inngang í lögfræði, sem er ekki fyrr en 18 október hehe

Plús það er almenna lögfræðin að fara að byrja, og evrópuréttur svo það verður mega mikið að læra!

Gangi ykkur sem allra best, sakna þín :*

Anonymous said...

það vottar alveg fyrir smá öfund hérna megin, næs að geta bara horft á eiffel turninn nánast daglega!
hafiði það gott ;)

Anonymous said...

æi váá. ég hlakka sko GEÐVEIKT til að koma til ykkar í heimsókn!;)

knús til þín

Unknown said...

Ef ég væri ekki að fra til ítalíu í nóv þá væri ég að koma til ykkar!!!! ég vona ða ég geti komið að hiemsækja ykkur áður en þið komið hiem Stelpur!!! mig langar svo innilega til að hitta ykkur!!! ég sakna þess að vita ekki af ykkur á n´sta horni!!!! fariði svo vel með ykkur þarna úti stelpur!

Dóra said...

Takk fyrir það öll, þið eruð nú meiri krúttin, og endilega komiði í heimsókn :)

Janni said...

Sæl Ingibjörg!

Gaman að heyra að þið séuð hamingjusamar þarna úti.

"...ekki leiðinlegt að fá sér mojito, finnst það alls ekki leiðinlegt"

Neinei, þér finnst það ekki leiðinlegt. Þá veit ég að þú hefur ekki breyst ennþá. Þú mátt endilega gera mér þann greiða að halda því bara þannig.

Ég bið að heilsa ykkur og óska ykkur góðrar skemmtunar - en vona á sama tíma að ykkur beri gæfa til að ganga hægt um gleðinnar dyr.

Ekki gleyma góðu stundunum í ritstjórninni, bestu kveðjur,

Janni

Doppa said...

Jeii dóra byrjuð að blogga aftur, verður gaman að lesa um parísarævintýrin...kveðja
Doppa